English
Landbúnaðarháskóli Íslands | Hvanneyri | IS - 311 Borgarnes | sími 433 5000 | fax 433 5001 | kt.411204-3590
Tölvur og tölvuver
Nemendur fá úthlutað tölvupóstfangi frá skólanum. Hægt er að komast inn á vefviðmót póstsins á vefsíðunni http://vefpostur.lbhi.is . Einnig er hægt að tengja netfangið við almennt tölvupóstforrit á einkatölvum. Nemandi slær inn username, sem er netfangið, og þar á eftir lykilorð sem nemanda er úthlutað. Einnig má komast inn á vefpóstinn í gegnum www.lbhi.is og www.slbh.is.

Kennsluvefurinn www.skoli.is  er vefur á netinu þar sem hver og einn áfangi er settur upp með kennurum og nemendum. Þar geta átt sér stað samskipti milli nemenda og kennara varðandi námið. Þar birta kennarar námsefni, verkefni og annað sem til fellur og auk þess geta nemendur skilað verkefna-úrlausnum á skoli.is.

Upplýsingaforritið Stefanía heldur utan um feril nemenda í skólanum. Þar geta nemendur skoðað persónulega stundaskrá sína og aðrar slíkar upplýsingar, svo sem einkunnir, próftöflur og annað. Farið er inn á Stefaníu í gegnum heimasíðu skólans www.lbhi.is  til vinstri á síðunni undir Uppl. Stefanía. Nemendur slá inn kennitölu sína og fá svo lykilorð við komu í skólann.

Vistun gagna
Nemendur hafa aðgang að sameiginlegu drifi (M drif) með kennurum, sem er ætlað undir gögn sem þeir viljið deila með öðrum. Ekki er ætlast til að nemendur visti gögn annars staðar en í þeirri möppu sem umsjónamenn tölvumála hafa útbúið fyrir þá eða í möppu sem hefur verið útbúin af kennara.

Nemendur hafa einnig aðgang að H drifi sem er heimadrif nemandans. Um er að ræða 250 mb vistunarpláss sem enginn annar hefur aðgang að nema tölvufólk. Í ákveðnum tilfellum er hægt að sækja um stærra vistunarsvæði.

Ef nemandi notar tölvu skólans koma M drif (sameiginlegt) og H drif (einkadrif) sjálfvirkt inn.
Þeir nemendur, sem nota eigin tölvu, þurfa að “mappa” inn sérstaklega bæði drifin.

Leiðbeiningar um að tengja (“mappa”) netdrif
Ferð inn á My Computer.
Fara síðan í tools og velja Map Network drive.
Í efri glugganum velur þú H:
Í neðri glugganum skrifar þú \\lbhi.is\nemendur$\nem.xxx
(Þar sem stendur xxx setur þú afganginn af notendanafninu þínu).
Síðan blikkar þú þar sem stendur logon as a different user.
Í efri gluggann skrifar þú nem.xxx@lbhi.is  
Og í neðri gluggann lykilorðið þitt.
Velur síðan ok. Og athugar hvort það er ekki örugglega hakað við reconnect at logon.
Og síðan ok aftur.
Þá ættir þú að tengjast heimasvæðinu þínu.
Aftur eins þegar þú tengist millidrifinu nema þú velur M í stað H og skrifar \\lbhi.is\millidrif$
Til að tölvan geti vistað lykilorð, sem svona eru notuð, þarf notandi að hafa lykilorð inn á notendasvæði sitt á tölvunni.
Athugið að vistunarsvæði eru eingöngu fyrir gögn nemenda. Ekki er heimilt að vista ólöglega fengið efni á netþjónum skólans né hugbúnað.

Þráðlaust samband í skólahúsum
Þráðlaust netsamband er í skólahúsunum. Þetta netsamband er læst og þegar tölva er fyrst tengd inn á þráðlausa netsambandið þarf að hægri smella á þráðlausa netmerkið neðst í hægra horninu og velja View Available Wireless network.
Þá eigið þið að fá upp glugga þar sem þið getið valið samband sem heitir LBHI. Veljið það samband og smellið á connect. Þá fáið þið upp glugga þar sem þið sláið inn Network key í báðar línurnar og veljið connect.
Network key er hægt að nálgast hjá starfsfólki tölvuþjónustu.

Vírusvarnir
Nemendum er ekki heimilt að tengja tölvur sínar við netkerfi skólanns nema þeir séu með samþykktar og uppfærðar vírusvarnir. Vírusvarnarhugbúnaðurinn verður að innihalda vörn fyrir vírusum, "trojuhestum", "grayware" og njósnahugbúnaði. Dæmi um slíkan hugbúnað er: Trendmicro Internet Security og Norton Internet Security.
Landbúnaðarháskólinn selur nemendum vírusvarnarhugbúnaðinn Trendmicro Internet Security". Hann er hægt að panta með því að senda tölvupóst á hjalp@lbhi.is . Verð á ársáskrift er kr. 3000 (með fyrirvara um breytingar á verði) og unnt er að panta það hjá starfsmönnum tölvumála.
Þeir nemendur, sem verða uppvísir af því að vera með smitaðar vélar, mega búast við því að lokað verði á aðgang þeirra að netkerfinu án fyrirvara.
Nánari upplýsingar um tölvumál og almennar reglur um notkun tölvubúnaðar og aðgang að netkerfi Landbúnaðarháskóla Íslands er að finna á heimsíðu skólans http://www.lbhi.is  undir tölvumál.

Tölvuver
Tölvuver skólans eru tvö í kjallara Ásgarðs. Þar að auki eru tölvur á bókasafni og þráðlaust netsamband er í Ásgarði, bókasafni, Gamla skóla, Rannsóknarhúsi og Bútæknihúsi.

Nemendur fá öll lykilorð og nánari upplýsingar við komu í skólann.

Tölvuaðstoð er hægt að fá með því að senda póst á netfangið: hjalp@lbhi.is